CPT. Solo Cabin Crew

ROCK ON BIATCHES!!

13.07.2008 16:28:11 / gentryresidence

Lítill Erfingi....

Leit dagsins ljós á Laugardagsmorguninn 12.júlí. Hann er hinn sprækasti og vóg 3750gr og er heilir 51 cm. Móðir heilsast vel og mér líka.........hann er stax farinn að biðja um að fá að fara í loftið !!

http://s3.frontur.com/img/18205/20080713150203_2.jpg

» 4 hafa sagt sína skoðun

14.05.2008 22:56:25 / gentryresidence

HálendisRúnturinn...

Fór í 5 tíma túr um hálendið í þar-síðustu viku á Cessnu 152,(ekki besta vélin fyrir svo langa ferð8|) leiðin lá yfir Langjökul-Hveravelli-Kerlingafjöll-Sprengisand-Bárðarbungu-Hrauneyjarfossvirkjun-Heklu-Þórsmörk-Bakka-Dyrhóley-Skógarfoss-Kirkjubæjarklaustur-Skeiðarásand-Hvannadalshnjúk-Skeiðarájökull-Mýrdalsjökul-Þjórsá-Hvítá-Selfoss-Reykjavík. Annsi mörg Örnefni Koveruð í þessari ferð og gaman að sjá þau svona ofan frá.  Myndin tekin á flugvellinum á Bakka, með Eyjarnar í baksýn !

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.05.2008 23:45:22 / gentryresidence

Sing Hallelujah!!

Þá er loksins Ritsjóri síðunnar kominn úr langþráðu Vetrarfríi. Hann hefur langt stund á aukið nám undanfarnar 5 vikur, og er að ljúka Kennsluréttindum frá Tækniskólanum í Reykjavík. Já tíminn flýgur og hárið hans með!  Konan hans er á síðustu vikunum á sinni 2ari meðgöngu og er undirritaður farinn að setja sig í stellingar fyrir væntanlegt fæðingarorlof, og það á EM - ári!!!:haha: Góð tímasetning hjá honum.......

 Frumburðurinn tognar út eins og Tomma-SEX í Plankastrekkjara, og Hundurinn er að gera Húsfreyjunni lífið leitt með sífeldu hárlosi, "hvað getur hann gert að þvi" ? er spurt á reglulegum Fjölskyldufundum um málið. Það var jú Húsfreyjunnar að taka af skarið með að skera kúlurnar undan litla Prinsinum , og fær hún það nú óspart í bakið......henni til mikillar armæðu!!! Hann er vissulega heimakærari sonur minn, en það verður seint fundinn hinn fullkomni Hundur! ekki frekar en Kona eða Karl.............djöfulsins ruglið í Ritjóranum, hann er mjög sennilega með "slag" af Englaryki í nösinni8|...... LATER DUDES!

» 1 hafa sagt sína skoðun

08.03.2008 14:05:13 / gentryresidence

Sunnudagsrúnturinn!

http://lh4.google.com/CPTJOE/R9Hsi5OXsNI/AAAAAAAAAD4/76UuuUpjEcI/IMG_4418%20%282%29.JPG?imgmax=512

Skrapp á TF-FAA síðasta sunnudag og náði nokkrum mögnuðum myndum í Vetrarbúningnum!

» 5 hafa sagt sína skoðun

03.02.2008 00:06:39 / gentryresidence

Commercial Pilot

Loksins Loksins , strákurinn búinn að ná langþráðum áfanga, Atvinnuflugmannsréttindin eru í höfn.!!!!:haha::haha: Ég var reyndar farinn að halda að ég ætti ekkert að komast í þetta blessaða Check ride! Það var ekkert sem að gekk upp, veðrið, prófdómarinn í timaþröng og svo bilaði einhver græja sem að við þuftum að nota fyrir RT testið , sem að ég þurfti að vera búinn að fara í fyrir Tjékk-rædið. 3 daga bið og vitleysa og ég búin á því andlega......en það var ekkert smá ljúft að stíga út í helv..... Arrrowinum eftir flugið og PAUL-"Pass Them ALL" (Prófdómarinn) segir við mig "Exelent ride" Það var virkilega ljúft, enda gekk prófið svona asskoti vel!!!  En jæja ég er farinn á haugafyllerí, halda upp á áfangann!!!

Góðar Stundir..........Gentry;););) og Klakinn á Fimtudag!!! 'ujeeehhhh


» 11 hafa sagt sína skoðun

25.01.2008 03:06:26 / gentryresidence

GLEÐILEGT ÁR DUDES!!

Langt síðan maður hefur hent inn línu. Er sem sagt staddur í Naples í síðasta skipti, að minnsta kosti í langan tíma. Er að klára Cpl-ið (atvinnuflugmannsréttindin) sem að náðist ekki fyrir Jólin. Málið var að andsk....kennarinn missti Medicalið sitt og þar með réttindin til að kenna stráknum, þegar við áttum um 3-4 flug eftir með honum. Ekki tóks að fá annan, þar sem að hann er sá eini í NAC sem að hafði réttindi til þess.En hvað um það.

Ég er sem sagt kom út fyrir rétt um viku, og það hefur allt gengið á afturfótunum með að klára þetta helv....... veikindi og svo er nú ekki búið að vera glæsilegt veður hérna. Alltaf lágskýjað og einhver skítur í veðrinu. Þannig að þetta er að teygjast um sennilega viku, og veit ég að hún Jonna mín verður nú ekki par ánægð ef að það tegist eithvað lengra. Eins og eflaust margir vita núorðið að þá er hún blessunin með barni, og hormóna-þolinmæðin ekki mikil hjá þessari elsku.:haha: En kallinn er nú orðinn ansi spenntur og stefnan er sett á að ná að baka strák í þetta skiptið, jafna út kynjahlutföllin í Lynghólum EITT. Fígó er víst kvenkyns!!

Það er svo sem ekkert meira að segja, ekkert nema námsefni og "flug" í gangi. 

Þar til síðar.......JJG 


» 8 hafa sagt sína skoðun

01.12.2007 17:42:31 / gentryresidence

Final Countdown!!

Nú er farið að styttast í annan endann hérna hja Kjallinum, byrjaði í CPL inu í vikunni, og það ætti að vera Dunn Díll eftir 10-14 daga!!! Fer reyndar eftir þvi hvað vinnst undan honum Victori kennaranum mínum, hann er ekkert að flýta sér með hlutina, og þarf maður að eyða cirka 4 tímum hjá honum, fyrir 1.5 tíma flug!!!! Hann Dundi er bara skólastrákur við hliðina á honum8| En fínn kall !! Brottför til Íslands 19.des. Get ekki beðið eftir alvöru Íslenskum Jólum!

Annars er maður bara að pakka og læra og nú verður maður að reyna að massa Tanið aðeins upp svo að sólargeðveikir Íslendingar Front-i mann ekki í hvert einasta skipti like " Hvað varst þú ekki á Florida" ??? Sama Sun-Junkie Manian heima!! Eftir þesss dvöl hérna sér maður hvað Planet Sól er ofmetin heima á Klaka... En lofa að græja þetta....Folks!!

Ég var svo heppinn að fá að skoða hraðskreiðasta bíl Veraldar , Bugatti Veyron, í Porche umboðinu hérna í Naples. Þetta er náttúrulega alveg þroskaheft Græja!!!8|8| Tekur Formúlu bílana í nefið, 1001 hestafl,16 strokkar, notar meira loft á mínútu enn ég anda að mér á 4 dögum:!::!: og hámarkshraði 408 km/klst....mæli með Top Gear þættinum breska, þar sem að þeir setja Fullt RÖR á Kvikyndið!! Kostar 115 millur!!!!!! SjúkT Leikfang......

Hérna er svo Linkur á smá preview af heimsókn Skara og Einsa, Later Dudes ....Joe!!

http://www.youtube.com/watch?v=n2wuUjuIjnw


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.11.2007 06:57:01 / gentryresidence

BACK AGAIN

Jæja þá er maður kominn á Track aftur eftir 2 vikur undir Feldi af skólabókum, og heimsókn frá BIG O and BIG E. Það var nú ekki slor að fá þessa "Þungaviktar-Menn" í heimsókn , þó stutt væri. Tókum Miami Beach með Trukki og BiG E hljóp af sér hausinn þarna á ströndinni. Það er náttúrulega "Sjúkt" að fara út að hlaupa 4 tímum eftir að síðasti Jim Beam-inn fór í gegnum Lifrina, já það er oft skrítinn Kýrhausinn!! :$

Hvað Big O varðar að þá var hann nú meira hamingjusamur að fá Malboro Mentol í öll mál, eithvað sem að er ekki í boði á hinu Ný-ríka Íslandi!!! hérna sá hann Himna-"Ríkið" og skolaði því niður með BUD-Light.  En það sem að kom nú einna best í ljós í þessari heimsókn þeirra félaga var hvað þeir eru augljóslega farnir að eldast þessir jafnaldrar mínir!:D  Þeir þurftu alveg fáránlega mikið að sofa þessir hundar, já og hef ég, nú verið kenndur við hið fræga "Lagnar" kyn, og þyki ótrúlega snjall að sofna í tíma og ótíma samkvæmt minni heittelskuðu, en þessir menn eru Beyond My LIMITS!!!!  Enda stórir skrokkar sem að þarf að hvíla mikið.8| 

Það átti sér stað ansi skondið atvik inni á Írskum Pöbb á South Beach. Við félagarnir vorum komnir í 6 gír og Einar var eithvað að ráfa um dansgólfið í leit að Bráð. Kemur þá ekki Gentry-inn aðsvífandi til að taka bráðina út hjá kalli, nema hvað. Mér líst ekkert á þetta hjá kauða, tek það fram að ég var annsi þéttur. Ætla að koma í veg fyrir yfirvofandi hryðjuverk og smelli vinstri hendinni á honum undir hausinn á mér og ætla að slengjonum upp á bakið á mér og rölta með hann út. Notaði þetta oft á Jonnu og fleiri góða þegar hámarks-ölvunarstígi var náð, með 100% árangri. En, í þetta skipti fer eithvað óútskýranlegt gjörsamlega úr höndunum á mér. Einsi sveiflast yfir hausinn á mér, á augabragði,nema hvað....Nú fylgja lappirnar á honum með og hann svífur eins og flugdreki yfir skallann á kallinum og lendir alveg Mar-flatur á bakinu fyrir aftan hælana á mér. Ég stend þarna stjarfur á meðan Einsi greyið fölnar og roðnar á vixl fyrir framan viðstadda. Ég lýt við og sé hvað dömurnar sem að Einsi var að gera gott mót við, leggjast í gólfið af hlátri og mér sýndist önnur þeirra vera að míga á sig.:lol::lol: Ég flýti mér fyrir hornið þar sem að ég get ekki haldið í mér lengur og öskar úr hlátri. Einsi kallin að steindrepast allt kvöldið í bakinu, og hótar að mæta 40 kílóum þyngri að ári!!!! Gæfi annan handlegginn fyrir að hafa náð þessu á videó. 

Við skelltum okkur svo á skotæfingarsvæði daginn eftir, þar sem að við dældum blýji í myndir af Talibönum og öðrum hryðjuverkamönnum úr 9mm Glock, 9mm Heckler & Koch,að ógleymdri hinni 40calibera 10mm Smith & Wesson, sem að var rosalegt tæki!!

Ekki skemmdi það fyrir að fá að handfjattla hina goðsagnakendu AK-47 Kalashnikov sem að getur drepið af 1350 metra færi, en það er kvikyndið sem að maður sér alla Uppreisnarmenn heimsins bera. Tek það fram að ég er aðeins Leikmaður er að byssum kemur!!!  En þetta var alveg magnað. Takk fyrir heimsóknina Guys, You Always Rocks!!!!

Ho Ho Ho, We say Hey Hey Hey!!! Erum við ekki að fara að taka þessa Eurovisionkeppni í ár!!!  Segið ykkar álit, Please!!!!   myndir af komu stóru stóru strákanna í Picasa albúminu.

Gentry Out.......


» 4 hafa sagt sína skoðun

03.10.2007 23:10:17 / gentryresidence

Boðorð vikunnar!! Aldrei að plana Road-trip með stuttum fyrirvara...Þá bilar eithvað alveg Pottþétt!!

.....Leiðin lá síðan morguninn eftir til Phoenix þar sem að við flugum back to Naples með millilendingu í Houston. Kom heim á miðnætti, pakkaði niður til heimfarar, 3ja tíma kría og þá var lagt af stað til Orlando, eða ég ætlaði að leggja af stað þangað. 'Eg var nefnilega búinn að leigja mér forláta bílaleigu bíl, og var orðinn vel pungsveittur við að lóda töskum og öðrum fylgihlutum í hann. Nema hvað, helv...drusslan fer ekki í gang, og ég átti eftir að fara í Mollið og taka einn Íslending á það. Nú voru góð ráð dýr. Ég hef nefnilega einu sinni komið of seint til Orlando-Sandford International, og þá þurfti ég að lauma Tedda bróðir um borð í hjólastól til að hann fengi að fara með!!!. Ætlaði ekki að koma of seint aftur. Ég of seinn? þekki það ekki!!!:haha: Ég fæ þarna Gæja frá Bílaleigunni til mín eftir dúk og disk og 4.5 tímar í Take-off. Druslan rauk náttúrulega í gang eins og ég spáði fyrir um í 25 mín símtali við þjónustu-stúlkuna hjá Bílaleigunni, sem að var að ráðleggja mér að setja lykilinn í Svissinn,stíga á bremmsuna, setja hann í Park og svoleiðis eðal-leiðbeiningar fyrir HÁLVITA!!  Jú viti menn græjan rýkur í gang á 0,6.  Hann býður mér í staðinn að fá Mustang þar sem að ég var að verða full seinn að ná vélinni heim. 450 km framundan og tæpir 4 timar eftir. ÉG þurfti að sleppa við allt Traffic JAM og ekkert vesen,og meðalhraði upp á 30 yfir löglegum!! Ég þigg boðið án þess að blikka.....

"Pedal to the Metal" var slagorð ferðarinnar og ég var kominn langleiðina að Tampa, þegar ég leit á Garmínu vinkonu mína, og sá að ég hafði unnið mér inn 20 auka mínútur, Sló inn "Leyndarmál Viktoríu" og viti menn ég var ekki nema 4 km frá næstu búð. Ég átti nefnilega óleyst verkefni í þeirri ágætu verslun, sem að ég ætlaði að afgreiða þarna í Moll Mission-inu,sem fór út um þúfur!! Er að ég kem inn á svæðið að þá átta ég mig á þvi að ég er á háannatíma hjá Verslunar-glöðum Ameríkönum. Þetta var sem sagt Mollið í Brendaton og ég sá hvorki laust bílastæði né Merkið hjá Vikku. Ég ek einn hring í kringum Kofann og sé að ég get gleymt þessu þar sem að ég var búinn að tapa þessum 20 mínútum fyrir ekki neitt, og engin Victoríubúð sjáanleg að utan frá Mollinu!! og engin tími til að fara inn og rölta um og leita af henni!! Nú voru góð ráð aftur Dýr,og GPS-ið farið að suða í mér að ég væri ekki á leiðinni til ÍSlands með næstu vél. Ég var fastur í einhverji lengstu Moll-röð sem ég hef séð hérna úti, og ákvað að svindla aðeins á þessu. Það er nefnilega alltaf ein akrein í miðjunni hjá þeim hérna, sem að er einungis ætluð til að beygja inn á næstu bílastæða röð. ÉG semsagt ákveð að misnota hana allsvakalega og ek fram úr amk 43 bílum, er að ég kem að leiðarenda þar sem að ég þurfti að sulla mér út á næstu gatnamót. Allt stopp þar og ég skýt mér inn á milli.

Þá byrtist upp úr þurru einhver ljótasti miðaldra karlmaður sem að til er Vestan-meginn við Atlandshafið, tannlaus og illa til hafður. Hann gengur fram fyrir bílinn hjá mér, og byrjar að dansa eins og varnarmaður í Handbolta. Ég fer eithvað að spá í hvað gæjinn sé að gera þarna, og sé þá hvað vera vill. Hann er sennilega að láta undan geðbilaðri eiginkonu sinni, sem að hakkaði hann í sig inni í Mollinu fyrir enga karlmennsku. Hann ætlar að blás lífi í þá veiku hlið og láta sköllótta Íslendinginn heyra það fyrir að vera "sniðugur" og misnota 3ju akgreinina!! Ég legg á bílinn og skrúfa niður rúðuna og spyr "What The F..k are U Doing SIR?" , hann veðrast allur upp og segir " I just want to Tell U that U Are much more Important than we people in the Line behind U"  Ok ég veit að ég var grófur á KAnamælikvarðann.... en ég hafði engan tíma í að láta þennan asna stöðva för mína, og ég að fá geðveikiskast út af tímaleysi!!

Hann tuðar eithvað og ég nenni ómögulega að eyða tíma í þetta, hann kominn til hliðar við bílinn og leiðin er greið. 'Eg ætla að fá hann til að þegja og Hrauna einhverju út mér á Íslensku, vissi að það myndi virka eins og skot. Hann snar þagnar og segist ekki skilja mig og ég Hræki þá út úr mér... " I just said Sir, GO SEE A DENTIST FUCKER!!! og stíg á Pinnann, hann reynir að stökkva fram fyrir Mustanginn eins og alvöru Markmaður...Snar Geðveikur Gæi þarna á ferð !!!   ÉG skeyni honum svona skemmtilega með speglinum , er að hann Aular út úr sér "U ARE IN THE WRONG FUCKING COUNTRY U FUCKING PRICK", ég tapa mér úr hlátri og stíg Pinnann ennþá fastar í gólfið. Gæjinn alveg að tapa Sjálfinu og allri virðingu fyrir Útlendingum í sínu Heittelskaða Föðurlandi!!!  Ég rífjaði upp svipinn á kauða það sem að eftir var ferðar og gjörsamlega grenjaði alla leiðina. Rétt slefa um borð áður en Fyrsta Freyjan skellir í lás á vélinni.

Svona dagar gefa lífinu gildi, þegar maður nær í Mark á réttum tíma, spenna alla leiðina!!! Snilld:haha:. Mér er víst sagt af Góðri konu að ég sé Spennu og Adrenalín Fíkill.... það er víst sennilega rétt!!....En Guð fyrirgefi mér dónaskapinn og orðbragðið við kallgreyjið, ég átti bara slæman dag.:klikk:.....LOL   Kv....Bóbó. 


» 6 hafa sagt sína skoðun

03.10.2007 14:25:10 / gentryresidence

Grand Canyon ....Direct...Las Vegas!

Við strákarnir vöknuðum endurnærðir á miðvikudagsmorguninn síðasta, kl.6.30 og lögðum af stað til Miklagljúfurs! Já það er ekki á hverjum degi sem að maður er svona stutt frá þeim fagra stað,og í þetta skiptið var ekki hægt að sleppa þvi. Við flugum þangað í 10.000 feta hæð og ETE var ca. 1.5 tímar. Grand Canyon National Park er alveg magnað svæði, og aðflugið inn á völlinn er ansi skemmtilegt, það er eins og það hafi verið slengt Iðnaðar-Ryksugu ofan á skóginn þarna, tekin ein svona létt rönd úr honum, og þetta leit út úr lofti eins og Huge Librese Dömubindi:$

Við skelltum okkur svo í klukkutíma Þyrlu túr um Gljúfrið og það var alveg mögnuð sjón, alveg fáranlegt að sjá eithvað lið á bátum, veltast niður Colorado River sem að liggur í gegnum Gljúfrið sem er breiðast um 18 nm(24 km) . Þetta er alveg hrikalegt svæði og frá brún og niður í botn eru um 5300 fet, alveg ótrúlegt að lækurinn(446 km) sem að rennur þarna í gegn sé búinn að naga út þetta listaverk á 6 miljón árum!! (Wikipedia Rúllar).

Leiðin lá síðan straight til Las Vegas. Við lentum reyndar í þvi að AIRMAPPIÐ (GPS-IÐ;)okkar var að stríða okkur á leiðinni yfir Grand-Canyon þjóðgarðinum. Það er stranglega bannað að fljúga þarna á ákveðnu svæði sem að við vorum allt í einu snar komnir yfir og þurftum að taka "Guðna-Wing" til baka og það tafði okkur um hálfan Klukkara! And by the Snarræði of the Flugmaður að þá redduðum við þvi að lenda ekki í FAA.  Rétt áður en að við komum inn í Las Vegas loftrýmið að þá var Fáfnir farinn að rífast í Approach-gæjanum á Las Vegas og Turninum í North Las Vegas, þar sem að við lentum. Þeir voru ekki alveg að tala saman og var Faffy ekkert voðalega kátur með að þeir voru eithvað að grilla með það,hvor þeirra ætlaði að stýra okkur þarna inn. Betra að það sé á hreinu því að þetta Airspace er sennilega eitt mest Busy Bravo-Loftrými sem að við höfum flogið í!!  Við tókum svo 6. hótelið á 8 dögum og var Hooters Casino fyrir valinu!!! Ég valdi það ekki Jonna,og fékk engu ráðið!!!!:haha::haha:  Skelltum okkur út að éta á Ítalskan stað sem að var í Casinóinu á New York-New York Hótelinu, sem að var alveg magnaður andskoti! Tókum svo túristann á þetta það sem að eftir lifði kvölds og enduðum á Coyote Ugly. Það var reyndar ekki flottasti staðurinn í Vegas, en allavegana leiddist okkur ekki að horfa á einn 8-ræðann afa, sem að var sennilega búinn að innbyrða heilt Baðkar af Viagra. Stelpunum leiddist heldur ekki að stríða honum með þvi nudda sér utan í hann og mér sýndist hann vera við það að míga á sig úr spennu!!! SNILLD.  Ráðlegg þeim sem að hafa ekki komið til Vegas, að láta verða af þvi áður en að það kemur að 6 feta athöfninni. Las Vegas er eithvað sem að maður sér hvergi annarstaðar, og jafnvel Nýja Jórvík á ekki roð í hana!!.....Gentry.


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.09.2007 06:37:20 / gentryresidence

SEDONA ARIZONA

Þar sem að ég er alveg hraun eftir daginn að þá læt ég myndirnar tala sínu máli, og bendi á Picasa albúmið hérna á blogginu!! Miklagljúfur á morgun vonandi. ....Síðar, BóBÓ.


» 8 hafa sagt sína skoðun

23.09.2007 03:31:22 / gentryresidence

Desert Joe...or Appetizer ?

Við erum þessa stundina staddir í Eyðimörkinni i Arizona. Nánar til tekið í bæ sem heitir Chandler. Þar erum við búnir að flakka á milli 4 hótela/mótela á 5 dögum :D ekkert nógu gott fyrir Íslendinginn fyrir nógu lítinn pening! Við byrjuðum á þvi að eyða klukkutíma í loftinu hérna með kennara, sem að var með færri tíma en Faffy, Ripp-OFF dauðans. Fáránlegt að þurfa að fara í eithvað Check-out til að fá að fljúga þvi sem að maður hefur flogið tugi klukkutíma á:evil:

Nóg fyrir þá að lesa bara Logbókina!!! Kaninn í hnotskur.... En jæja við þurftum nú að bæta ofan á þessa vitleysu með Mountain Check-outi, sem var 2 tíma túr með kennara , hvað annað, upp á völl sem að er hérna í ca. 6000 feta hæð yfir sjávarmáli. Það er reyndar ekkert grín að fljúga þessum Druslum hérna í svona mikilli hæð og í Plús 25 stiga hita!  Mér var ekkert farið að lýtast á blikuna, er að ég rétt skeið yfir snúrustaurana í bakgarðinum á húsunum við Brautar-endann!!! Held að í fyrsta skipti á mínum stutta Flugferli hafi ég verið örlítið smeikur!

Erum þá loksins komnir með öll þessi check-out sem að þarf hjá þessu Skóla....nema hvað ég þarf að taka Nætur-check-out til að fá að fljúga á þessu vélum þeirra eftir sólsetur!!!!! Come ON!!   Þetta er náttúrulega bara GRILLLLLLLLLLLLLLLLL!!!! Gentry-inn með IR-Ratingu ..nei nei það skiptir ekki máli!!! Maður fer nú bara að hneigja sig fyrir Rikka Ríka eiganda Air-Center!!(Skólinn minn í Naples gott fólk,hef bölvað honum fram til þessa)

En hvað sem þessu tuði lýður..maður verður að fá að blása aðeins hérna People:klikk: að þá fórum við loksins í loftið án kennara í gær, og leið okkar lá suður fyrir Phoenix til bæjar sem að heitir Marana. Á leiðinni komum við á alveg mögnuðum flugvelli sem að heitir Pinal. Hann er nefnilega svona Flugvéla -kirkjugarður. Þar var alveg haugur af Bumbum A.K.A Boeing 747 fyrir þá sem að ekki þekkja,ja eða Jumbó-þotur eins og flestir þekkja þær! Það sem að var samt einna merkilegast er að þarna var alveg haugur af þessum vélum sem að voru með Íslenskt skáningarnúmer, sem sagt gömlu Bumburnar sem að Atlanta notaði lengi vel. Gaman af þvi!

TF-ARD, vél Atlanta! 

Ferðinni var síðan heitið áfram til Marana , og þar rákumst við á alveg magnaðann flugvélaáhugamann sem að var að gera upp gamlar A-4 herflugvélar!! Hann sagðist vera sá eini í öllum Bandaríkjunum sem að ætti 4 stk af þessum gömlum snildarvélum!! Tek það fram að ég veit ekkert um þessar vélar... þær voru bara geðveikt COOL!!! 

Á morgun ætlum við að fara hérna í Norður í átt að Miklagljúfri og skoða bæ sem að heitir Sedona. Þetta á víst að vera einhver fallegasti staður á Kúlunni. Flestir þekkja sennilega myndir úr Vestrunum frá þessu svæði þar sem að ríðandi Kúrekar eru með Rauð Klettafjöll í baksýn.

Svo er það Miklagljúfur og Las Vegas í vikunni.....og hver veit nema að maður skelli sér bara aðeins heim, eftir þetta. Komin heimþrá í kallinn og fjölskyldmissirinn er farinn að segja til sín:cry:  Later...Joe!

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.09.2007 04:43:54 / gentryresidence

BAHAMA MAMA!!!

Á föstudaginn síðasta lá leiðin upp í vél og var ferðinni heitið til BAHAMAS. Fór þangað fljúgandi ásamt 2 stelpum sem að erum með mér í skólanum. Flugum sem leið lá beint frá Naples , yfir West Palm Beach og þaðan beint út yfir Atlantshafið. Þetta var ca. klst yfir sjó, þannig að við vorum vopnuð björgunarvestum um borð!!!  Újehhh.....hverju bjargar það nú þegar Hákarlarnir koma til að slíta mann í sundur?  Flugum meðfram eyjunnu Grand Bahama sem leið lá til March Harbour, sem er eithvert mesta krummaskuð sem að ég hef komið á.Lentum þar og fórum í gegnuma allt helvítis Custom dæmið , sem fylgir þvi að fljúga International. Tókum einn Hammara og aftur í loftið. Leiðin lá til Freeport á Grand Bahama, sem er svoa einn af 2mur helstu túristapleizum Bahamas. Það er eins og fara aftur til 1960 af koma til Bahamas, nema hvað við fengum glænýja Limmu, er að við fórum út til að taka Taxa niður á Hótel, já maður reiknaði ekki með þeim þarna. Hún lyktaði reyndar eins og Fjárhúsið hjá Zoffa á Hrafstöðum að innan!!!:haha:    Annars þá var nú búið að lofa Bahamas svo mikið við mann, að ég varð fyrir töluverðum vonbrigðum með þetta allt saman, ja allavegana FreePort,maður verður þá að prufa Nassau næst!!

Það er náttúrlega alveg fáránlega fallegt þarna, sjórinn ýmist ljósblár, eða jafnvel grænn , séð úr lofti. Sjórinn er svo ótrúlega tær þarna, enda ákaflega vinsælt að kafa þarna!!  Við skelltum okkur svo út að éta þarna, það kom mér reyndar óvart hvað það var góður matur hjá þeim. Kíktum svo aðeins út á næturlífið , ekkert nema blámenn þarna,þannig að við fórum í Casínóið og Bryndís hélt að hún væri að verða Milli þegar að rafmagnið fór af Kofanum og við urðum að yfirgefa staðinn!  Ferðinni var svo heitið heim morguninn eftir og er skemmst frá þvi að segja að Turninn i Freeport varð okkur næstum þvi að gríðarlegu frjárhagslegu tjóni, er að þeir gleymdu að Active-eita flugplanið okkar inní Amerísku Lofthelgina. Þeir sögðust vera búnir að þvi er að við kölluðum í þá, en Bryndís var nú svo gáfuð að tjékka á þvi hjá FSS svona til öryggis.Hún fær prik fyrir það stelpan!! Nei NEi þeir steinlugu að okkur og við hringsóluðum fyrir utan ADIZ línuna þangað til við fengum heimild til að krossa hana. Lentum svo á West Palm Beach International til að fara í gegnum Tollin og fá Visað okkar framlengt. Aftur í loftið sem leið lá til Naples. Tæplega 8 tímar í Skyhawk á 24 tímum, og ég var alveg Hraun!!!

Á morgun er svo ferðinni heitið til Arizona þar sem að stefnan er sett á að safna 30-50 tímum á 10 dögum!! Skoða Grand Canyon og fleiri áhugaverða staði þar, það er víst af nógu að taka!! 

Það er búið að vera svo Kreizý veðrið hérna síðustu 2 daga að ég hélt að þakið ætlaði að rifna af í kvöld. Í gær myndaðist Twister hérna rétt fyrir ofan og slátraði hann 150 húsum og  5000 eru án rafmagns. Svo í kvöld að þá skemmdust 2 vélar hjá skólanum er að Severe Thunderstorm gekk hérna yfir og þær voru bundnar niður , en það segir náttúrulega ekkert, þær enduðu allar á hvolfi og eru örugglega ónýtar!! Í fréttunum var viðtal við Flugvallarstjórann og hann sagðist aldrei hafa orðið vitni að öðru eins veðri hérna!!   þannig að það er best að halda sér fast í þegar Kári fer að blása.

 Þar til síðar.......JOE


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.09.2007 19:26:57 / gentryresidence

AHH.."970-AC ON SHORT FINAL FOR 17...WATCH OUT THE TIGER IN FRONT OF YOU !!...970AC....GO AROUND!!

Við FaFFy lentum í þvi í gær að það tók svona asskoti myndarlegt Tígrisdýr á móti okkur er við svifum inn til lendingar á Marco Island. Þetta var Fullorðið Kvikyndi sem að stóð þarna á brautinni og horfði girnilega á Eðal-Islenskt hráefni fyrir væntanlega kvöldmáltið..:D  

Þetta var semsagt svokallaður Florida Bobcat, sem að er Tígurkattar-tegund sem að lifir villt hérna á Florida. Það er áætlað að það séu ca. 500 dýr á 100 ferkílómetra svæði hérna. Þeir eru Kjötætur og lifa mestmegnis á einhverjum smádýrum, s.s Fuglum og Kanínum og eithvað álíka.

Við höfum annað-slagið séð Krókudíla skríða yfir brautarendann þarna, en aldrei þessi kvikyndi.Þau er meira fyrir að halda sig inni í skóginum. Kennir okkur að skilja aldrei myndavélina eftir heima. Maður veit aldrei hvað bíður manns þarna úti .....Lurge OUT!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.09.2007 08:59:19 / gentryresidence

Alive & kicking!! The Lurge is Back !!!

Þá er Gamla Svínið búinn í ATPL inu, próflokamartröð Dauðans á enda og ég orðinn fullur af cortisoli og slæmum stesserocepturum sem að naga Kragann inn að skinni!!! Já það er engin miskun í KANE-LAND!!!   'Eg reiknaði cirka 7 kíló á Lovehandle Maintenance Load shítið, sem að er svona meðaltalstölur á ekki lengra tímabili!!!  Fridays í Morgunmat, Kvöldmat og svog hin frábæra nýjung hjá Mikka D að senda heim eftir Middnæt er naturlig bara O-some!!!:$

Minn ágæti Fósturbróðir Sveinn Jónasson er Orðinn HALL of FEIm Kvikyndi þarna á "Þakkaðu Guði fyrir að það er FöstudaguR"!!!  ja hann ber það með sér strákurinn, full dygur fyrir smekk Gamla mannsins.......en hann hafði það samt af að draga kvikyndiðð á Gentryinum í Universal stax eftir próf ósofinn og ógeðslegur ,en vegna metnaðarleysis í ,(Já ANNA Mæja) ," Rýmisgreynd" varð það til þess að Rólerkóster-trippið endaði aðeins á HARD-Rock Berbesúe , AKA HAlla Dobba!!!

En ég er samt ekkert svakelga fullur hérna !!!! Roy hvernig var Linkurinn sem að ég sendi þér? Læt eina flakka með ......Magga Á.  ég veðja á þig kippu !!! :haha::!:

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Heimsóknir
Í dag:  13  Alls: 27026
Dagsetning
8. febrúar 2012
RSS tengill
Frumburðurinn !